Þetta er heimspekikaffi/heimspekikaffihús þar sem hist er í tvo tíma, ákveðið málefni krufið og rætt heimspekilega í c.a. tvo tíma
Heimspeki Café er heimspekikaffi/heimspekikaffihús einnig kallað Café-Philo (Café Philosophique).
Það er ákveðið fyrirfram eitthvað málefni, ákveðinn staður og stund til að ræða málefnið og það krufið í tvo tíma og tekið fyrir á heimspekilegum nótum.
Heimspekikaffihús er samtalsform byggt á hugmynd Marc Sautet sem kallast Heimspekikaffi (Á frummálinu Café philosophique, oft stytt sem “Café-Philo”).
Borin er fram spurning eða umræðuefni og skiptast þáttakendur á að kryfja málefnið og skoða sem flestar hliðar á málefninu.
Heimspekikaffi er samtalsform, ekki fyrirlestur eða slíkt.
Rætt er á mannlegum nótum það er ekki skilyrði að vera menntaður í viðkomandi málefni, vita ákveðið mikið um málefnið eða þessháttar.
Heimspekikaffið er staður fyrir frjálsa rökræðu.
Öll eru velkomin, eina sem þarf að mæta með er heilbrigð skynsemi.
Viðhafðar eru nokkrar reglur sem eru mjög einfaldar:
1) Einn talar í einu
2) Rökstyðja
3) Halda sér við efnið
4) Ekki vitna í aðra (sjá betur reglu 2)
Aðrar ábendingar svo hægt sé að fá sem mest út úr umræðunni:
Allir sem vilja, eiga að komast að
Handaupprétting er tákn um að vilja komast að
Gott er að tala ekki of lengi í einu
Heimspekikaffi Café krefst engrar sérstakrar reynslu eða menntunar i heimspeki, áhugi er nóg.
Tilkynninga- og Upplýsingasíða Facebook, smella HÉR
Næsti viðburður:
Heimspeki Café
Geta peningar keypt hamingju/gleði og ef það e tilfellið, hve mikið er þá nóg?
24. ágúst ‘24, 16:00-18:00
Komandi viðburðir:
Hittingar verða allir fyrst og fremst auglýstir á facebook síðunni Heimspeki Café.
Það verða með tímanum að öllum líkindum fastar tímasetningar og líklega hægt að sjá 2-3 hittinga fram í tímann. Allar uppfærslur sem og óvæntar uppákomur eða breytingar verða sett á tilkynninga-síðunni https://www.facebook.com/heimspekicafe/ .
Farið á https://www.facebook.com/heimspekicafe/ og sendið skilaboð fyrir fyrirspurnir og ábendingar.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á heimspekicafe@gmail.com
© 2024 Heimspeki Café